Úti í Eyjum Bjó Einar kaldi Er hann hér enn? Hann var öðlingsdrengur, Ja svona eins og gengur Um Eyjamenn. Í kvenmannsholdið Kleip hann soldið Klípur hann enn? Hann sigldi um sæinn, Svalan æginn Siglir hann enn? Allir saman nú: Tra-la-la, Tra-la-la la-la, Hann bjargaði sér fyrir björgin dimm, Tra-la-la, Tra-la-la la-la, þær báðu hans einar fimm. Hann unni einni, Önnu hreinni, Ann'ann'enn'enn? En hvar er Anna, Elsku Anna? Við spyrjum konur og menn. Hann sást með Guddu, Sætri buddu, í suðlægri borg, En Anna situr, Ein og bitur, í ástarsorg. Allir saman nú: Tra-la-la, Tra-la-la la-la, Hann bjargaði sér fyrir björgin dimm, Tra-la-la, Tra-la-la la-la, þær báðu hans einar fimm. Mér er sem ég sjá'ann Einar kalda, Mér er sem ég sjá'ann Einar hér. Er hann Einsi kannski búinn að tjalda Við hliðina á þér... Mér er sem ég sjá'ann Einar kalda, Mér er sem ég sjá'ann Einar hér. Er hann Einsi kannski búinn að tjalda Við hliðina á þér...